Marseille er að klára kaupin á Mason Greenwood frá Manchester United. Hinn virti Fabrizio Romano hefur skellt sínu fræga Here we go! á skiptin.
Greenwood mun skrifa undir fimm ára saming við Marseille sem kaupir hann á 30 milljónir evra. United fær þá 50% af næstu sölu á Englendingnum unga.
Sóknarmaðurinn mun fljúga til Marseille í dag og gangast undir læknisskoðun.
Greenwood gerði vel á láni hjá Getafe á síðustu leiktíð en á ekki framtíð á Old Trafford.
🚨🔵⚪️ Mason Greenwood to Olympique Marseille, here we go! Deal in place between all parties.
OM have booked private flight for Mason to land in Marseille, undergo medical tests and sign.
Deal valid until June 2029.
Man United to receive €30m package plus 50% sell-on clause. pic.twitter.com/cGMGZ5rgAK
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) July 17, 2024