Magni býr yfir mikilli reynslu erlendis en hann hefur starfað í Svíþjóð frá árinu 2011 hjá Brommapojkarna, Brann, AIK og Start. Áður þjálfaði hann Grindavík og Fjarðabyggð hér heima auk þess sem hann var aðstoðarþjálfari hjá HK og Víkingi.
„Það er gjörsamlega galið að ákveðnu leyti að yngri flokka störf séu einn af stærri tekjuliðum félagana,“ sagði Magni í Chess After Dark.
„Svoleiðis þekkist ekki úti – án þess að vera of gagnrýninn, ég þarf að passa mig hvað ég segi en ef þú horfir erlendis þá eru varla til þessi atvinnumannalið sem Íslendingar eru að keppa við og bera sig saman við í Skandinavíu. Þar eru meistaraflokkar og þeirra tekjur að borga fyrir yngri flokkana.“
Magni sagði í viðtalinu að það væri ekki raunin hér á landi.
„Æfingagjöldin borga fyrir meistaraflokka og íslenskt ungmennastarf er á heimsmælikvarða en vandamálið er að það er ekkert afreksstarf. Ég er ekki að segja að fólk eigi að byrja með afreksstarf. Afreksstarfið er ekkert og síðan erum við með deild, tvö lið sem byggja leikmannahópa sína þannig svo þeir eigi að ná árangri. Það eru ekki svo miklir peningar fyrir að vinna Íslandsmótið eða bikarkeppnir svo peningarnir koma frá því að ná langt í Evrópu.“
Mikil umræða skapaðist um ummæli Magna á X (áður Twitter) í gær. Spratt hún upp út frá færslu Flosa Eiríkssonar, formanns knattspyrnudeildar Breiðabliks.
„Það væri áhugavert hvort hann getur staðið við þessa fullyrðingu – þetta er allavega alls ekki með þessum hætti hjá félaginu þar sem ég þekki til,“ skrifaði Flosi.
Þorkell Máni Pétursson, fjölmiðlamaður og stjórnarmaður KSÍ með meiru, lagði einnig orð í belg.
„Þetta með æfingagjöldin er klárlega rangt. Þessi fullyrðing um þróunardeild er hinsvegar rétt. Frændur okkar furða sig soldið á þessum háa meðalaldri sem er í deildinni okkar og hversu fá tækifæri ungir leikmenn fá.“
Einar Guðnason, fyrrum aðstoðarþjálfari hjá Víkingi og nú þjálfari U19 ára liðs kvenna hjá sænska félaginu Örebro, segir það löngu liðna tíð að tekjur frá yngri flokkum færu í meistaraflokka.
„Sammála þetta er ekki svona þar sem ég þekki til. Áratugir síðan barna fótbolti og mfl voru aðskildir. En kannski hefur þetta tíðkast í þeim félögum sem hann vann hjá fyrir 15- 20 árum.“
Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri ÍTF, tók í svipaðan streng og margir.
„Taktlaus yfirlýsing sem er ekki neinu samræmi raunveruleikann. Félög í efstu deildum greiða með afreksstarfinu sínu og á sama tíma bera ábyrgð á öllu öðru yngri flokkastarfi. Það þekkist frekar að greitt sé með yngri flokkum en öfugt.“
Loks hafði Þórir Hákonarson, fyrrum framkvæmdastjóri KSÍ, sitt að segja um málið en hann var ekkert að flækja hlutina.
„Algerlega glórulausar fullyrðingar og rétt að viðkomandi sjái sóma sinn í að leiðrétta.“
Hér að neðan má sjá þráðin í heild og ummæli frá fleiri aðilum.
Það væri áhugavert hvort hann getur staðið við þessa fullyrðingu – þetta er allavega alls ekki með þessum hætti hjá félaginu þar sem ég þekki til.
— Flosi Eiríksson (@FEiriksson) July 14, 2024