Manchester United gæti hætt við það að kaupa einn mest spennandi leikmann Evrópu sem ber nafnið Joao Neves.
Frá þessu greinir blaðamaðurinn Christopher Michel en enska stórliðið hefur sýnt Neves áhuga í dágóðan tíma.
Ástæðan er Kobbie Mainoo, landsliðsmaður Englands, sem hefur verið einn besti leikmaður liðsins á EM í Þýskalandi.
United er talið hafa boðið 60 milljónir evra í Neves í sumar en hann er á mála hjá Benfica í Portúgal – Benfica vill þó fá 100 milljónir fyrir miðjumanninn.
United hefur áhyggjur að koma Neves muni hafa áhrif á þróun og spilatíma Mainoo sem vakti fyrst athygli síðasta vetur.