Odsonne Edouard er líklega á förum frá Crystal Palace í sumar eftir nokkuð misheppnaða dvöl á Englandi.
Edouard hefur fengið mikið að spila undanfarin þrjú ár en hann kom til Palace frá Celtic 2021.
Síðan þá hefur framherjinn leikið 101 leik en aðeins tekist að skora 21 mark sem er ekki frábær árangur.
Fyrir það var Frakkinn hjá Celtic í Skotlandi og skoraði 89 mörk í 196 leikjum eftir komu frá Paris Saint-Germain.
Edouard skoraði 17 mörk í 14 leikjum fyrir U21 landslið Frakklands en hefur ekki leikið A-landsleik.
Fabrizio Romano segir að nokkur lið séu að sýna Edouard áhuga en þau spila bæði á Ítalíu og á Englandi.