Óskar Hrafn Þorvaldsson mun ekki taka við sem þjálfari karlaliðs KR eftir tímabil, þvert á umræðuna undanfarið. Mikael Nikulásson og Ingimar Helgi Finnsson segjast báðir hafa heimildir fyrir þessu í nýjasta þætti Þungavigtarinnar.
Óskar yfirgaf Breiðablik í haust og tók við Haugesund í Noregi, þaðan sem hann fór eftir aðeins sex leiki. Nýlega tók hann að sér ráðgjafahlutverk hjá KR og tekur hann við sem yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu um næstu mánaðarmót.
Gregg Ryder var rekinn sem þjálfari KR nýverið og Pálmi Rafn Pálmason er tekinn við út tímabilið. Umræðan víða hefur verið á þann veg að Óskar taki svo við eftir tímabil og fái heilt undirbúningstímabil með liðið. Miðað við þessar fregnir er þó ekkert til í því.
KR hefur verið í miklum vandræðum á tímabilinu. Liðið er í áttunda sæti með 14 stig og hefur ekki enn unnið heimaleik í sjö tilraunum.