Galatasaray vill losna við Wilfried Zaha í sumar þar sem félagið hefur varla efni á að borga launin hans áfram.
Það vakti nokkra athygli þegar Zaha fór til Galatasaray síðasta sumar frá Crystal Palace.
Zaha er 31 árs gamall en hann er með 300 þúsund pund á viku í Tyrklandi sem er að reynast félaginu erfiður baggi.
Zaha skoraði tíu mörk í 42 leikjum á síðustu leiktíð en hann er með samning í tvö ár í viðbót.
Kantmaðurinn er orðaður við endurkomu til Englands en ljóst er að fjöldi liða hefði áhuga á að krækja í hann.