Kylian Mbappe, leikmaður Frakklands, mun klæðast nýrri grímu í leik liðsins gegn Belgíu á morgun.
Mbappe var ósáttur með grímuna sem hann notaði gegn Pólverjum í síðasta leik þar sem hann skoraði eina mark leiksins.
Frakkinn nefbrotnaði í riðlakeppninn og þarf að klæðast grímu en hann telur að fyrri gríman hafi verið mjög óþægileg og að hann hafi ekki séð nógu vel.
Mbappe verður því með öðruvísi grímu í leiknum gegn Belgum á mánudag sem gerir honum auðveldar fyrir að sjá það sem er fyrir framan sig.
Um er að ræða einn allra besta leikmann heims en hann er 25 ára gamall og samdi við Real Madrid í sumar.