England 2 – 1 Slóvakía
0-1 Ivan Schranz(’25)
1-1 Jude Bellingham(’90)
2-1 Harry Kane(’91)
Enska landsliðið var tveimur mínútum frá því að detta út á EM í Þýskalandi eftir leik við Slóvakíu í 16-liða úrslitum í kvöld.
England var eins og áður á mótinu ekki sannfærandi og tókst að skapa sér mjög takmarkað af marktækifærum.
Ivan Schranz skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Slóvaka er 25 mínútur voru liðnar af fyrri hálfleik.
England var mun meira með boltann í seinni hálfleik og átti skot í stöng en vörn Slóvakíu hélt vel og örugglega mest allan tímann.
Á 95. mínútu skoraði Jude Bellingham hins vegar með bakfallspyrnu og tryggði þeim hvítklæddu framlengingu.
Í byrjun framlengingarinnar skoraði Harry Kane fyrir England sem reyndist nóg til að tryggja liðinu dramatískan 2-1 sigur og farseðilinn í 8-liða úrslit þar sem liðið mætir Sviss.