Kai Havertz virðist ekki vera nógu ánægður með það sem hann fær að borða sem leikmaður Arsenal á Englandi.
Þjóðverjinn er staddur í heimalandinu þessa stundina en hann leikur með Þýskalandi á EM og eru 16 liða úrslitin framundan.
Havertz er afskaplega ánægður með að vera kominn heim og fær nú ‘loksins’ að borða almennilegan morgunmat – að eigin sögn.
Maturinn á Englandi hentar ekki öllum en virðist fara sérstaklega illa í Havertz sem átti þó ágætis tímabil í vetur.
,,Já sem betur fer, loksins,“ sagði Havertz í samtali við þýska miðilinn Sport1 er hann var spurður út í hvort maturinn væri upp á tíu.
,,Ég fæ loksins að borða góðan morgunmat í heilan mánuð. Ég get þakkað fyrir það.“