Matthijs de Ligt, varnarmaður Bayern Munchen, er sterklega orðaður við enska stórliðið Manchester United þessa stundina.
Góðar líkur eru á að De Ligt færi sig um set í sumar en hann er 24 ára gamall og lék áður með Juventus og Ajax.
De Ligt þekkir þjálfara United, Erik ten Hag, vel en þeir unnu saman hjá hollenska stórliðinu.
Raphael Varane hefur yfirgefið Old Trafford og leitar félagið að miðverði og er De Ligt líklega efstur á óskalistanum.
United er hins vegar einnig að skoða Jarrad Branthwaite hjá Everton en hann kostar yfir 70 milljónir punda.