Arsenal er tilbúið að nýta sér fjárhagsvandræði Basrcelona og gæti verið að undirbúa tilboð í varnarmanninn Jules Kounde.
Kounde er franskur landsliðsmaður en hann er með því liði á EM í Þýskalandi þessa stundina.
Sport á Spáni segir að Barcelona sé búið að fá fyrirspurn frá Arsenal varðandi Kounde en félagið gæti þurft að selja leikmenn í sumar.
Kounde er nokkuð fjölhæfur leikmaður en hann hefur bæði spilað í miðverði og á miðjunni á sínum ferli.
Barcelona þarf að selja leikmenn í sumarglugganum og gæti í ruan neyðst að losa Kounde ef nógu gott tilboð berst frá Arsenal.