Samkvæmt hlaðvarpsþættinum Dr. Football verður Gylfi Þór Sigurðsson áfram fjarverandi í liði Vals í kvöld í Bestu deild karla.
Gylfi missti af síðasta leik Vals gegn Vestra og samkvæmt umræðu í þættinum í dag verður það einnig í kvöld þegar liðið heimsækir ÍA.
Einnig var sagt að Aron Jóhannsson yrði áfram frá vegna meiðsla og þá mun Hólmar Örn Eyjólfsson ekki vera með vegna leikbanns.
Það eru því þrír af bestu leikmönnum Vals sem verða fjarverandi í kvöld ef marka má umræðuna í þættinum.
Valur er fimm stigum á eftir toppliði Víkings en á leikinn í kvöld gegn ÍA til góða og geta minnkað forskotið niður í tvö stig.