Chelsea vill losa sig við Romelu Lukaku í sumar og það er búist við því að tvö lið á Ítalíu vilji fá hann.
Lukaku hefur síðustu tvö tímabil verið á láni hjá Inter og Roma en núna vill Chelsea selja hann.
Antonio Conte vill fá framherjann til Napoli en AC Milan hefur einnig áhuga.
Lukaku hefur átt góð ár hjá Inter og það færi ekki vel í þá að sjá framherjann fara til AC Milan.
Chelsea vill fá 25 milljónir punda fyrir Lukaku sem kostaði félagið meira en 100 milljónir punda fyrir þremur árum þegar hann kom frá Inter.