Riðlakeppni EM í Þýskalandi var rækilega gerð upp í nýjasta þætti af Íþróttavikunni. Þar fengu þeir Helgi Fannar og Hrafnkell Freyr lögfræðinginn og hlaðvarpsstjörnuna Jóhann Skúla Jónsson í heimsókn.
Þjóðverjar unnu sinn riðil á 7 stigum og mæta Dönum í 16-liða úrslitum. Heimamenn eru til alls líklegir.
„Ég held að árangur Bayer Leverkusen hafi hjálpað Nagelsmann svolítið. Hann fær Robert Andrich, Florian Wirtz og Jonathan Tah alla á fleygiferð. Þetta eru ekki menn sem hafa verið fastamenn síðan hann tók við,“ sagði Hrafnkell um leikmenn þýsku meistaranna.
Jóhann sagði Þjóðverja hafa komið á óvart miðað við umræðuna fyrir mót.
„Ég fékk ekkert annað en vondan fréttaflutning af Þjóðverjunum. Þeir voru ekki að spila neina keppnisleiki og maður sá bara að þeir töpuðu. Það átti að reka Nagelsmann á tímabili. Það kemur mér á óvart hvað þeir eru massífir.“
Umræðan í heild er í spilaranum.