Myndband af ítalskri konu standa á nærbuxunum einum saman í bíl er nú í mikilli dreifingu og vekja ensk götublöð athygli á því.
Í fyrstu var talið að myndbandið væri frá því nýlega þar sem EM í er fullum gangi í Þýskalandi en breska götublaðið The Sun segir það vera frá því Ítalía varð Evrópumeistari fyrir þremur árum síðan, eftir sigur á Englandi í úrslitaleik.
Af einhverjum ástæðum er það þó í dreifingu nú en óhætt er að segja að konan sem um ræðir hafi verið í góðum gír eftir sigur sinna manna.
Ítalía er komið í 16-liða úrslit EM sem nú stendur yfir og mætir þar Sviss á morgun.