Jorgen Strand Larsen, 24 ára gamall norskur sóknarmaður, er sennilega á leið í ensku úrvalsdeildina, nánar til tekið til Wolves.
Kappinn er á mála hjá spænska liðinu Celta Vigo, en hann skoraði 13 mörk í La Liga á síðustu leiktíð.
Viðræður milli Wolves og Celta ganga vel en leikmaður vill sjálfur fara til Englands. Það má því búast við að skiptin gangi í gegn.
Það var einnig áhugi á Larsen frá Ítalíu en Wolves virðist vera að vinna kapphlaupið um leikmanninn, sem einnig hefur spilað með Groningen og Sarpsborg í meistaraflokki.
🚨🟠 EXCL: Wolves are advancing in talks to sign Jørgen Strand Larsen as negotiations are progressing fast.
Strand Larsen, keen on the move as personal terms are also set to be agreed.
Italian clubs were also in the race but #WWFC now confident to get it done.@MatteMoretto 🤝🏻 pic.twitter.com/qaaVZwesgF
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) June 27, 2024