UEFA hefur sent spænska dómarann Gil Manzano heim af EM í Þýskalandi. Þetta kemur fram í miðlum í heimalandi hans.
Manzano dæmdi aðeins einn leik á EM. Sá var á milli Frakklands og Austurríki í fyrstu umferð riðlakeppninnar.
Það er ekki algjörlega á hreinu hvers vegna Manzano er sendur heim en Relevo, stór miðill á Spáni, segir það vera vegna frammistöðu hans.
Riðlakeppni EM lauk í gærkvöldi og 16-liða úrslit hefjast á laugardag.