Fiorentina er að kaupa Moise Kean af stórliðinu Juventus.
Framherjinn var keyptur til Juventus í fyrra eftir að hafa verið þar í tvö ár á láni frá Everton. Hann kom upp í gegnum unglingastarf Juventus en hefur einnig spilað með Paris Saint-Germain.
Nú er hinn 24 ára gamli Kean á leið til Fiorentina, sem kaupir hann á 13 milljónir evra. Gæti verðið hækkað upp í 18 milljónir evra ef allt gengur upp hjá Kean í Flórents.
Kean, sem tókst ekki að skora í Serie A í fyrra, krotar undir langtímasamning við Fiorentina.
Kappinn á að baki 15 A-landsleiki fyrir Ítalíu en í þeim hefur hann skorað fjögur mörk.
🚨🟣 Moise Kean to Fiorentina, here we go! Deal in place for €13m fixed fee up to €15m package easy add-ons included.
Extra difficult add-ons could bring the package up to €18m for Juventus.
Kean will sign long term deal at Fiorentina, he was top target as per @MatteMoretto. pic.twitter.com/f0t3ynqSq3
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) June 27, 2024