Everton er við það að ganga frá samningi við Wilfried Ndidi en hann kemur frítt til félagsins frá Leicester.
Ndidi er frá Nígeríu og hefur verið hjá Leicster síðustu ár og staðið sig vel.
Everton býst við því að selja Amadou Onana í sumar og er Ndidi hugsaður sem arftaki hans.
Leicester er komið aftur upp í ensku úrvalsdeildina en Ndidi ætlar að hverfa á braut og fara til Everton.