Chelsea hefur sett sig í samband við Leicester en félagið hefur áhuga á Kieran Dewsbury-Hall, leikmanni Leicester. The Athletic segir frá þessu.
Hinn 25 ára gamli Dewsbury-Hall spilaði lykilhlutverk er Leicester sigraði ensku B-deildina á síðustu leiktíð. Skoraði miðjumaðurinn tólf mörk og lagði upp fjórtán.
Dewsbury-Hall spilaði undir stjórn Enzo Maresca, sem nú er tekinn við Chelsea, hjá Leicester. Sá síðarnefndi sér hann sem frábæran kost á Stamford Bridge.
Dewsbury-Hall vill sjálfur fara til Chelsea en er sem stendur ekki opinn fyrir að yfirgefa Leicester fyrir neitt annað félag.
🚨 EXCL: Chelsea contact Leicester City to express interest in signing Kieran Dewsbury-Hall. No formal offer yet but 25yo midfielder keen to join only #CFC if exits #LCFC. Seen as a perfect fit for style of play under head coach Enzo Maresca @TheAthleticFC https://t.co/U1s5EoTUvj
— David Ornstein (@David_Ornstein) June 27, 2024