Manchester United hefur lagt fram tilboð í Manuel Ugarte miðjumann PSG sem var hafnað, félögin halda áfram viðræðum sínum.
Ugarte spilaði 42 leiki í öllum keppnum á síðustu leiktíð en United vill styrkja miðsvæði sitt í sumar.
Ugarte er landsliðsmaður frá Úrúgvæ en hann kom til PSG síðasta sumar frá Sporting CP.
Ugarte kostaði 52 milljónir punda þegar hann kom til félagsins en Chelsea hafði þá einnig áhuga á honum.
Sky Sports og miðlar í Frakklandi fjalla um málið en viðræðurnar halda áfram og United vonast til að klára málið.