Ofurkonan og áhrifavaldurinn, Kim Kardashian er ástfanginn af knattspyrnumanninum Jude Bellingham og myndi glöð vilja slá sér upp með honum.
Blaðið Heat fjallar um málið en Bellingham er byrjaður að starfa sem fyrirsæta hjá Skims sem nærfatamerki sem Kim á.
Bellingham er ein skærasta stjarna fótboltans og Kim hefur talað fallega um hann. „Ég er svo stolt af því að kynna Jude sem andlitið í nýju herferðinni okkar,“ segir Kim.
„Hann hefur verið rísandi stjarna í fótboltanum síðustu ár en hefur nú sannað sig sem einn sá besti. Hann hefur áhrif á næstu kynslóð.“
Það sem flækir málin fyrir Kim er að Bellingham er í sambandi með hollensku fyrirsætunni Laura Celia Valk og hefur samband þeirra verið að þróast.
„Hann býr í Madríd og hún komst að því að hann væri í sambandi, ef Bellingham fer á laust þá er Kim klár í slaginn,“ segir heimildarmaður Heat.
Segir heimildarmaðurinn að Kim geti ekki hætt að tala um Jude sem er tvítugur en sjálf er Kim 43 ára gömul.