„Þvílík upprisa hjá einum manni eftir vonbrigðin hjá United,“ sagði Arnar Gunnlaugsson á RÚV í gær um Ralf Rangnick þjálfara Austurríkis sem áður þjálfaði Manchester United.
Austurríki vann riðil sinn þrátt fyrir að bæði Frakkland og Holland hefðu verið í honum.
Arnar tókst á við Hjörvar Hafliðason um Rangnick sem er ekki að kaupa lofsöng um stjórann. „Hvað var hann búinn að gera áður en kom til United? Þessi hápressu fótbolti? Hann er fyrirlesari, ég er að kvóta Cristiano Ronaldo,“ sagði Hjörvar.
„Hann var búinn að byggja upp brand af fótboltanum, hann fer til United og það er eins og enginn þekki hann hjá United. Ég var ekki að segja að hann hafi verið góður hjá United.“
„Ég kalla þetta upprisu, hafa ekki getað rassgat í tuttugu ár.“
Arnar og Hjörvar eru ekki alveg sammála um ágæti
Ralf Rangnick landsliðsþjálfara Austurríkis.
🎙️Arnar „Þvílík upprisa hjá einum manni..“
🎙️Hjörvar „Hann er svona fyrirlesari.“
🎙️Arnar „Nei nú ertu farinn að kvóta í einhverja svona..“
🎙️Hjörvar „Cristiano Ronaldo já.“ pic.twitter.com/tyNtCEZfoP— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) June 25, 2024