RÚV hefur gert Evrópumótinu í knattspyrnu afar góð skil síðustu vikur en þar hafa hinir ýmsu aðilar gjörsamlega farið á kostum.
Hörður Magnússon er einn þeirra en hann hefur í gegnum árin verið einn besti íþróttalýsandi landsins.
Hörður var að lýsa leik Englands og Slóveníu í gær þegar hann fór að ræða um metra í aukaspyrnu sem England átti.
„Þetta eru 23-24 metrar, þetta er nær. Í kringum 20 metrana, 28 metrar. Það getur ekki verið,“ sagði Hörður.
Mörgum fannst þetta ansi kostulegt og skrifar einn. „Þetta rifrildi Hödda Magg við metrakerfið er fyndnasta moment EM til þessa,“ segir kauði.
Umrætt atvik er hér að neðan.
Þetta rifrildi Hödda Magg við metrakerfið er fyndnasta moment EM til þessa. pic.twitter.com/t0oNRuCzKS
— JS el johann (@Eljohann4) June 25, 2024