Hinn ólseigi Ashley Young hefur gert eins árs framlengingu á samningi sínum við Everton og tekur því slaginn með liðinu á næstu leiktíð.
Þessi 38 ára gamli leikmaður spilaði stóra rullu með Everton á síðustu leiktíð og segir hann við heimasíðu félagsins að það hafi verið mjög auðveld ákvörðun að framlengja.
Young gekk í raðir Everton í fyrra en á flottum ferli sínum hefur hann einnig spilað fyrir Aston Villa, Inter, Manchester United og Watford.
Ashley Young has signed a one-year contract extension with the Toffees! ✍️
— Everton (@Everton) June 25, 2024