Barcelona, Paris Saint-Germain og ónefnt félag í ensku úrvalsdeildinni eru öll áhugasöm um Kingsley Coman, leikmann Bayern Munchen.
Sky Sports segir frá þessu en kantmaðurinn er sem stendur með franska landsliðinu á EM í Þýskalandi.
Coman var töluvert meiddur á síðustu leiktíð en er þó eftirsóttur og Bayern til í að skoða tilboð í hann. Það er talið að hann kosti um 50 milljónir evra.
Samningur Coman, sem er 28 ára gamall, við Bayern rennur út eftir þrjú ár. Hann hefur verið á mála hjá félaginu síðan 2015 en hann var einmitt hjá PSG í heimalandinu á yngri árum.