Eins og rækilega hefur komið fram í fréttum hefur Kolbeinn Sigþórsson, fyrrverandi atvinnumaður og landsliðsmaður í knattspyrnu, verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni.
Í ákæru héraðssaksóknara í málinu sem DV barst í dag er lýsing á meintu broti Kolbeins sem átti sér stað þann 26. júní árið 2022. Í ákærunni er aldur meints þolanda Kolbeins afmáður, en um er að ræða stúlku. Kolbeinn er sakaður um að hafa dregið niður nærbuxur stúlkunnar og strokið kynfæri hennar fram og til baka mörgum sinnum.
Í ákærunni heldur héraðssaksóknari því fram að Kolbeinn hafi með þessu gerst sekur um brot á tveimur lagagreinum. Annars er um að ræða fyrstu málsgrein 194. greinar almennra hegningarlaga, hún er svohljóðandi:
„Hver sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við mann án samþykkis hans gerist sekur um nauðgun og skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum. Samþykki telst liggja fyrir ef það er tjáð af frjálsum vilja. Samþykki telst ekki liggja fyrir ef beitt er ofbeldi, hótunum eða annars konar ólögmætri nauðung. Til ofbeldis telst svipting sjálfræðis með innilokun, lyfjum eða öðrum sambærilegum hætti.“
Hins vegar er Kolbeinn sakaður um að hafa gerst brotlegur við fyrstu málsgrein 202. greinar almennra hegningarlaga, sem er svohljóðandi:
„Hver sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við barn, yngra en [15 ára], 1) skal sæta fangelsi [ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum]. 1) … 2) [Lækka má refsingu eða láta hana falla niður, ef gerandi og þolandi eru á svipuðum aldri og þroskastigi.“
Eins og kemur fram hér að framan er hámarksrefsing við þessu broti 16 ára fangelsi samkvæmt lagabókstafnum. Hins vegar er mjög sjaldgæft, ef ekki óheyrt, að svo þungir dómar séu kveðnir upp í kynferðisbrotamálum hér á landi.
Fyrirtaka var í máli Kolbeins við Héraðsdóm Reykjaness í gær, fimmtudag. Ekki liggur fyrir hvenær aðalmeðferð verður, en það er hin eiginlegu réttarhöld. Réttað er í málinu fyrir luktum dyrum.