fbpx
Laugardagur 31.ágúst 2024
433Sport

Fjölskylda stjörnunnar splundruð eftir að tengdadóttirin fór að framleiða klám – „Ég vil ekkert með þau hafa lengur“

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 29. maí 2024 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Matt Le Tissier knattspyrnugoðsögn er staddur í miðju fjölskyldudrama vegna þess að tengadóttir hans er byrjuð að framleiða klám og selja það í gegnum OnlyFans.

Alex og Mitchell Le Tissier hafa verið saman til fjölda ára og eiga saman fjögur börn en fyrir tveimur árum byrjað Alex að framleiða myndbönd til að selja á OnlyFans.

Síðan þá hefur Matt sem átti magnaðan feril sem leikmaður hjá Southampton ekki viljað tala við son sinn og tengdadóttur.

Allt sprakk þetta svo í loft upp um helgina þegar Matt og hluti af fjölskyldunni fór á Wembley og horfði á Southampton tryggja sér sæti í ensku úrvalsdeildinin. Þar birti hann mynd af sér.

„Geggjað að geta farið með fjölskylduna á Wembley,“ skrifaði Matt meðal annars.

Netverjar voru fljótir að benda á það að þarna vantaði Mitchell og Alex og svo fór að Alex blandaði sér í slaginn og ræðir málið við Daily Mail.

„Það voru augnablik þar sem við náðum ágætlega saman en mér fannst fjölskyldan aldrei taka mér,“ segir Alex sem segist hafa byrjað á OnlyFans til að ná endum saman fyrir fjölskylduna.

Hún segir að eiginmaður sinn hafi lent í áfalli og fjölskyldan misst tekjur. „Hann missti störf og við áttum ekki krónu, ég hafði ekkert annað vel en að fara á Onlyfans,“ segir Alex.

„Þetta var miðinn þeirra til að útiloka okkur endanlega.“

Matt tjáði sig um málið árið 2022. „Ég vil ekkert með þau hafa lengur,“ sagði kappinn þá og ljóst að fjölskyldan er splundruð vegna þess efnis sem Alex framleiðir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Samband Osimhen og Napoli í molum – Ekki skráður í hópinn

Samband Osimhen og Napoli í molum – Ekki skráður í hópinn
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Saka var forvitinn í gær – ,,Hvern erum við að kaupa?“

Saka var forvitinn í gær – ,,Hvern erum við að kaupa?“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Chelsea og Arsenal lánuðu leikmenn til liða í úrvalsdeildinni

Chelsea og Arsenal lánuðu leikmenn til liða í úrvalsdeildinni
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Nketiah keyptur til Palace frá Arsenal

Nketiah keyptur til Palace frá Arsenal
433Sport
Í gær

Sterling búinn að gefa græna ljósið og Arsenal setur allt á fullt

Sterling búinn að gefa græna ljósið og Arsenal setur allt á fullt
433Sport
Í gær

Gilmour fer til Ítalíu eftir allt saman

Gilmour fer til Ítalíu eftir allt saman