Manchester United vill fá Joao Neves, leikmann Benfica, sem arftaka Casemiro á miðjuna í sumar. Portúgalski miðillinn Record segir frá.
Casemiro hefur átt arfaslakt tímabil og er á förum. Það er ekki ósennilegt að hann haldi í peningana til Sádi-Arabíu.
United er því með augastað á Neves sem er afar spennandi leikmaður. Hann hefur átt frábært tímabil með Benfica.
Record segir að United muni leggja fram um 100 milljóna evra tilboð, sem er nokkuð nálægt því sem Benfica vill fá fyrir Neves.