Óskar samdi við félagið í október í fyrra en þar áður hafði náð eftirtektarverðum árangri með Breiðablik og meðal annars komið liðinu í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar.
Aðeins sex umferðir eru búnar af norsku úrvalsdeildinni og hefur gengi Haugesund verið upp og niður. Liðið er með sex stig eftir tvo sigurleiki og fjóra tapleiki.
Jesper Mathison, sérfræðingur TV2 um knattspyrnu, segir að uppsögnin hafi komið honum verulega á óvart.
„Þetta er mikið sjokk því ég virkilega hélt að þetta samstarf myndi standa yfir í langan, langan tíma.“
Hann segir að Óskar hafi spilað lykilhlutverk í uppbyggingu liðsins að undanförnu og stefnan hafi verið sett á að fá inn yngri leikmenn og leikmenn sem henta í þann leikstíl sem félagið vill spila.
„Það er ómögulegt að segja eitthvað meira fyrr en maður veit ástæðurnar fyrir þessu. En þetta kemur eins og þruma úr heiðskíru lofti – og virðist ekki vera eitthvað sem Haugesund hafi verið búið að undirbúa.“