Summer Fox er fyrrum lögreglukona í Bretlandi en hún segi reinu ástina í lífi sínu vera West Ham og stuðningur hennar við enska knattspyrnufélagið er mikil.
Fox starfaði lengi sem lögreglukona en borgar nú reikningana og lifir lífinu með nektinni.
Hún ólst upp við Upton Park, gamla heimavöll félagsins.
„Fyrrverandi kærastinn minn fór með mig á nokkra leiki og ég bara varð agndofa þarna,“ segir Fox.
Í dag starfar Fox við það að tala dónalega í símann og selja af sér nektarmyndir og segir það gefa vel í aðra hönd.
„Þegar þú horfir á Manchester United þá er svo mikið stres, í West Ham virðast allir vera svo góðir vinir.“
„Þegar ég fer á leiki þá er ég mikið á Instagram að ræða leikinn við fólk og fer yfir sigrana og töpin.“