Aron Sigurðarson, leikmaður KR, verður frá í 4-6 vikur samkvæmt sparkspekingnum Kristjáni Óla Sigurðssyni.
Kristján segir frá þessu á X en Aron hafði verið að glíma við meiðsli aftan í læri sem tóku sig upp á nýjan leik í upphitun gegn Fylki í fyrstu umferð Bestu deildarinnar.
Meira
Aron Sig fær úr myndatöku í dag en er vongóður – „Ég þrjóskaðist til þess að spila“
„Ég meiddist aðeins aftan í læri um daginn sem var ekkert alvarlegt, ég æfði svo 100 prósent í viku fyrir leik,“ sagði Aron í samtali við 433.is í morgun.
„Þetta kemur svo aftur upp í upphitun en ég þrjóskaðist til þess að spila, ég var hins vegar bara á annari löppinni. Ég gat ekki sprett eða notað vinstri löppina neitt.“
Aron sagðist svo vera á leið í myndatöku í dag og miðað við færslu Kristjáns verður hann frá í 4-6 vikur.
Aron Sig frá í 4-6 vikur samkvæmt mínu fólki hjá Domus medica. ❌
— Kristján Óli Sigurðsson (@kristjanoli) April 11, 2024