Það eru ágætis líkur á því að Manchester United muni skipta um stjóra í sumar eftir nokkuð brösugt gengi í vetur.
Erik ten Hag er stjóri United í dag en hann tók við liðinu fyrir síðasta tímabil eftir flottan árangur með Ajax.
Thomas Tuchel mun yfirgefa lið Bayern Munchen í sumar og er hann talinn vera ansi eftirsóttur.
Samkvæmt spænskum miðlum er Tuchel til í að taka við spænska liðinu Barcelona sem er einnig að leita að nýjum þjálfara – Xavi mun kveðja eftir tímabilið.
Tuchel er opinn fyrir því að taka við Börsungum en aðeins ef hann fær ekki starfið í Manchester.
Þjóðverjinn þekkir vel til Englands en hann þjálfaði Chelsea á sínum tíma og vann þar Meistaradeildina.