Mark Clattenburg, fyrrum dómari í ensku úrvalsdeildinni, var skíthræddur við harðhausinn Roy Keane á sínum tíma.
Clattenburg var lítill í sér er hann byrjaði að dæma í úrvalsdeildinni en það er ekkert grín að fá öskur frá Keane í andlitið sem var afskaplega ógnvekjandi á velli.
Clattenburg er talinn einn besti dómari í sögu deildarinnar en jafnvel hann átti erfitt með að standa upp fyrir sjálfum sér gegn Íranum.
Hann viðurkennir að hafa tekið ranga ákvörðun í einum leik vegna þess hversu hræddur hann var við miðjumanninn fyrrverandi sem lék með Manchester United.
,,Jafnvel í ensku úrvalsdeildinni, ég brosi í hvert skipti þegar ég hugsa um mín fyrstu kynni af Roy Keane,“ sagði Clattenburg.
,,Hann öskraði á mig og heimtaði að fá horn, ég er viss um að um markspyrnu hafi verið að ræða en hann öskraði það hátt að ég dæmdi horn. Ég var það hræddur við hann.“