Landsliðsmaðurinn Logi Tómasson var gestur Helga Fannars Sigurðssonar og Hrafnkels Freys Ágústssonar í nýjasta þætti af Íþróttavikunni á 433.is.
Logi er nokkuð nýr í landsliðshópnum en hann hefur verið í hópnum undanfarna þrjá landsleikjaglugga. Hann hefur sett mark sitt á liðið en í þættinum var hann meðal annars spurður út í það hvernig væri að spila með leikmönnum sem hann ólst upp við að horfa á.
„Í fyrsta verkefninu var maður aðeins að meðtaka þetta en svo eru þetta bara orðnir vinir manns. Þetta eru bara venjulegir gæjar,“ sagði Logi.
„Þetta eru toppmenn og maður lærir helling af þeim, sem er kannski eitthvað sem þeir fatta ekki einu sinni sjálfir. Hvernig þeir hugsa um sig og svoleiðis, maður ber mikla virðingu fyrir þeim.“
Umræðan í heild er í spilaranum.