Þáttastjórnandinn Ríkharð Óskar Guðnason, Rikki G, benti þá á að keppinautar Vals í Bestu deild karla væru farnir að styrkja sig og furðaði sig á að ekkert væri að frétta af Hlíðarenda.
„Blikar eru búnir að styrkja sig með góðum leikmönnum, Víkingar að gera það núna. Hvað er að gerast á Hlíðarenda? Þeir eru eins og týndur kafbátur sem næst ekki samband við. Eru menn ekki mættir í vinnuna?“ spurði Ríkharð í þættinum.
Mikael Nikulásson tók þá til máls en hann er á því að Valur sé þegar með svo gott sem nógu sterkt lið eftir góðar styrkingar undanfarin ár.
„Ég er ánægður með þetta hjá Val. Valur er ekki að fara inn í tímabilið með Rikka G og Mæk á miðjunni. Þeir eiga að hlúa að leikmönnunum sem þeir eru með í stað þess að troða inn fleirum. Þeir verða að vera betri og það er undir þeim komið. Ekki fara að fikta of mikið í þessu.
Þá vantar bakvörð og hafsent, þurfa kannski tvo leikmenn. Þeir þurfa ekkert að gera það 1. desember. Þeir geta bara tekið sér tíma. Þessi nöfn sem þeir eiga að vera með eiga að vinna þetta mót,“ sagði Mikael.
Kristján Óli Sigurðsson var einnig í setti en hann tók undir með Rikka. „Ég get lofað þér því hérna 2. desember að Valur verður ekki meistari 2025,“ sagði hann.
Valur hafnaði í 3. sæti Bestu deildarinnar í haust en ætlaði sér að vera mun nær toppnum en raun bar vitni.