Hannes yfirgaf Val árið 2021 og lagði skóna á hilluna skömmu síðar. Er Valur tilkynnti brottför Hannesar var sagt að hann hafi verið rekinn. Baðst félagið síðar afsökunar á tilkynningunni, sem átti aldrei að fara í loftið svona.
„Þá sprakk ég úr reiði, ég get alveg sagt það eins og það er. Það var búinn að vera mikill aðdragandi að þessu og mikið af erfiðum tilfinningum,“ segir Hannes í Dagmálum á mbl.is, spurður út í tilkynninguna.
„Þetta var leiðinlegt og opinbert mál sem var í fjölmiðlum. Fótboltinn var að klárast þarna og mögulega með allt öðruvísi og leiðinlegri hætti en stóð til. Það fór langur tími í það að fá niðurstöðu í málið en svo féll þetta í ágætis farveg og ég skildi við Börk og félaga í ágætis sátt. Daginn eftir kemur svo þessi tilkynning.
Þá var ég í rauninni orðlaus og skildi ekki hvað var í gangi. Það fóru allskonar getgátur af stað, Mér fannst illa að þessu staðið og þetta var klúður frá A til Ö. Ég held að Börkur myndi nú alveg taka undir það með mér,“ sagði Hannes.