Íslenska kvennalandsliðið mætir Danmörku í dag í öðrum vináttuleik sínum á Pinatar á Spáni. Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjáflari fer brattur inn í leikinn.
Ísland gerði markalaust jafntefli við Kanada fyrir helgi en þetta er eini leikur Dana í þessum landsleikjaglugga.
„Þetta verður hörfuleikur. Danir eru ekki búnir að spila fyrir þennan leik svo það verður ekki þreyta eða neitt svoleiðis. Þær mæta örugglega bara með sitt sterkasta lið og spila á móti okkur af fullum krafti,“ segir Þorsteinn í aðdraganda leiksins.
„Við vitum að Danir eru gott fótboltalið og við þurfum á öllum okkar kröftum að halda og góðri frammistöðu.“
Leikurinn hefst klukkan 17 í dag og má sjá hann á KSÍ TV í viðmóti Sjónvarps Símans.
🎙 Þorsteinn H. Halldórsson, þjálfari liðsins, um leik dagsins gegn Danmörku.#viðerumísland pic.twitter.com/NN16iklImX
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) December 2, 2024