Jose Mourinho stjóri Fenerbache er sagður hafa mikinn áhuga á því að koma aftur til Englands og taka við Newcastle.
Guardian segir að Mourinho horfi í starfið hjá Newcastle sem mögulegan kost fyrir sig.
Mourinho var rekinn frá Roma á síðustu leiktíð en tók svo við Fenerbache í sumar þar sem gustað hefur um hann.
Mourinho hefur stýrt Chelsea, Manchester United og Tottenham á Englandi en þar líður honum best.
Eddie Howe hefur gert vel með Newcastle en ef hann hættir þá vill Mourinho fá starfið.