Jarrad Branthwaite varnarmaður Everton er áfram á blaði Manchester United og er búist við að félagið haldi áfram að reyna að kaupa hann.
Branthwaite var á óskalista United í sumar en Everton hafnaði öllum tilboðum liðsins.
Ensk blöð segja að Everton geti ekki boðið Branthwaite betri laun, félagið er í vandræðum með fjármagn.
Því er búist við að Everton horfi í það að selja Branthwaite sem er 22 ára gamall.
Branthwaite er sagður kosta 70 milljónir pudna en United hefur þá fjármuni ekki í janúar nema að félagið selji leikmenn.