Enskir fjölmiðlar ræða um fátt annað en Viktor Gyökeres framherja Sporting Lisbon eftir þrennu hans gegn Manchester City í vikunni.
Gyökeres er falur fyrir 63 milljónir punda næsta sumar, hefur hann gert samkomulag við Sporting. Telegraph segir frá.
Sagt er í fréttum dagsins að Manchester United og Chelsea leiði nú kapphlaupið um sænska framherjann.
Real Madrid, FC Bayern og Arsenal eru einnig að skoða hlutina en Ruben Amorim stjóri Sporting er að taka við Manchester United.
Gyökeres er á sínu öðru tímabili með Sporting og hefur raðað inn mörkum.