Meirihluti stuðningsmanna Manchester United styður það að félagið byggi nýjan heimavöll við hlið þess gamla.
Eigendur Manchester United eru að skoða að byggja nýjan heimavöll þar sem völlurinn tæki tæplega 100 þúsund áhorfendur í sæti.
Meirihlutinn vill nýjan völl og vekur athygli að eldri stuðningsmenn United vilja frekar fara í breytingar en þeir yngri.
Old Trafford á sér ríka sögu í enska boltanum en völlurinn er sá stærsti í ensku úrvalsdeildinni.
Ársmiðahafar United fengu að kjósa í málinu.
52% – Nýjan völl
31% – Endurbætur á Old Trafford
17% – Óviss