Forráðamenn Real Madrid eru farnir að efast um Vinicius Jr og hvort hann hafi í raun og veru áhuga á því að vera hjá félaginu. Sport á Spáni segir frá.
Mikil læti eru iðulega í kringum Vinicius Jr innan sem utan vallar.
Real Madrid er að hiksta nú þegar Vinicius Jr og Kylian Mbappe eiga að leiða sóknarlínu Real Madrid saman.
Al-Hilal í Sádí Arabíu vill fá Vini Jr til félagsins og er hann sagður hafa áhuga á því, þar yrði hann einn launahæsti leikmaður í heimi.
Landsliðsmaðurinn frá Brasilíu er 24 ára gamall en hann var annar í kjöri á Gullboltanum í síðustu viku.