Stórstjarna í ensku knattspyrnunni fær ekki beint góða einkunn frá ónefndri fyrirsætu sem ræddi við enska fjölmiðla um þeirra samband.
Þessi ágæta kona sagði sína sögu í enskum miðlum en kýs ekki að koma undir nafni.
Hún og stjarnan sjálf kynntust í sumarfríi á sínum tíma og viðurkennir konan að hún sé þónokkrum árum eldri en maðurinn.
„Hann var mjög feiminn og vissi ekki hvernig hann átti að koma fram við kvenmann,“ segir þessi fyrirsætan.
„Ég er eldri en hann og ég skynjaði að það væri heillandi fyrir hann. Um kvöldið þá afklæddumst við inni á hótelherbergi en hann neitaði að fara úr sokkunum.“
Konunni fannst það ansi skrítið af hálfu mannsins og fór í kjölfarið að hlæja en hún hafði ekki lent í slíku áður.
Kynlífið fær hins vegar falleinkunn að sögn konunnar en hún hafði þetta að segja um sína reynslu:
,,Hann bað mig um að setjast ofan á sig, enginn forleikur sem var óheppilegt. Kynlífið var alls ekki gott,“ sagði hún.
,,Hann fékk það á nokkrum mínútum. Ég er ekki viss um að hans styrktaraðilar hefðu verið sáttir með þessa frammistöðu í rúminu!“