Manchester United, Everton, Liverpool og Manchester City ætla að sameinast á sunnudag og mótmæla hækkandi miðaverði á vellina.
Hækkandi miðaverð hefur gert vart við sig hjá bæði Liverpool og Manchester United undanfarið.
United hækkaði sitt verð í vikunni og er það ekki að falla vel í kramið.
Stuðningsmenn United og Everton munu mótmæla fyrir utan Old Trafford á sunnudag fyrir leik liðanna sem hefst klukkan 13:30.
Stuðningsmenn Liverpool og City munu mótmæla fyrir utan Anfield fyrir leik liðana sem hefst klukkan 16:00.