David Coote dómari í ensku úrvalsdeildinni heldur áfram að grafa holu sína og nú er hann grunaður um að taka þátt í veðmálasvindli.
Coote hefur lent í röð atvika á síðustu vikum, gamalt myndband af honum að drulla yfir Liverpool og Jurgen Klopp vakti reiði.
Í kjölfarið var Coote settur til hliðar en þá fór af stað myndband af honum að taka kókaín á miðju Evrópumóti í sumar.
Þegar flestir töldu að Coote fengi ekki að dæma aftur kemur í ljós að hann liggur undir grun um það að hagræða í leik.
Coote á að hafa sent vini sínum eftir leik. „Ég vona að þú hafir lagt undir eins og við ræddum,“ skrifaði Coote.
Um er að ræða atvik úr leik Leeds United og West Bromwich Albion þar sem Coote og vinir hans ræddum um að spjalda Ezgjan Alioski varnarmann Leeds í leiknum.
Cotte spjaldaði Alioski á 18 mínútu leiksins en skilaboð Coote við vin sinn leiða það í ljós að þeir ræddu það fyrir leik
Atvikið á sér stað eftir 19 mínútur og 34 sekúndur í myndbandinu.