Anel Ahmedhodzic leikmaður Sheffield United bjargaði unnustu sinni og barni þegar eldur kviknaði í heimili þeirra.
Atvikið átti sér stað í sumar en eldurinn eyðilagði allar eigur þeirra.
Ahmedhodzic er 25 ára gamall varnarmaður sem hefur verið hjá Sheffield síðustu ár.
„Það kviknaði eldur á heimili okkar í sumar, ég var sofnuð og sonur okkar líka. Sem betur var Anel vakandi,“ segir Marijana.
„Hann fann lykt og kom okkur út úr húsinu, við töpuðum öllum okkar verðmætum.“