Eiður Smári Guðjohnsen var sérfræðingur hjá Símanum í gær þegar helgin í enska boltanum var gerð upp á Vellinum með Herði Magnússyni.
Eiður hefur verið með Símanum í liði síðustu ár en enski boltinn mun á næsta tímabili færast yfir á Stöð2 Sport.
Eiður var að gera sig kláran í setti hjá Símanum í gær þegar leikur Newcastle og West Ham var að klárast.
Einhver mistök virðast hafa átt sér stað í tæknirýminu því á meðan leiknum stóð var skipt yfir á Eið Smára sem var að gera sig kláran.
Eitthvað var Eiður annars hugar og var að gera sig kláran en myndskeið af þessu hefur vakið mikla kátínu netverja.
Sæll @Eidur22Official pic.twitter.com/UsjdArE0lW
— Þórhallur Guðjónsson (@Dallurinn) November 25, 2024