Mark Halsey fyrrum dómari í ensku úrvalsdeildinni vill að David Coote dómari í dag fái tækifæri til að bæta ráð sitt.
Coote er í fríi þessa stundina eftir að myndband af honum að drulla yfir Liverpool og taka kókaín fór í umferð.
Coote urðaði yfir Jurgen Klopp fyrrum stjóra Liverpool í myndbandinu.
„Ég finn til með Coote, hann verður að fá stuðning með andlega heilsu sína. Ég get ímyndað mér hvað hann er að ganga í gegnum,“ segir Halsey.
„Fólk getur haldið því fram að hann hafi kallað þetta yfir sig. Á sama tíma þurfum við að styðja David, bæði dómarasamtökin og enska deildin. Hjálpa honum að komast í gegnum þetta.“
„Á hann skilið að halda starfinu? Það gera allir mistök og ég myndi vilja sjá hann fá hjálp og kannski halda starfinu.“