Það er ljóst að Dele Alli verður lengur frá fótboltanum en vonir stóðu til um, hann hefur verið án félags síðustu mánuði.
Dele hefur hins vegar æft með Everton undanfarið og var að vonast eftir samningi þar á nýjan leik.
Hann hefur hins vegar orðið fyrir áfalli í endurkomu sinni. „Dele sem er án samning, tognaði illa aftan í læri á æfingu,“ segir í færslu frá stuðningsmannasíðu Everton.
Dele hafði verið að æfa af krafti með Everton og var von á því að Everton færi að ræða við hann um nýjan samning.
Dele átti að fara að spila með varaliði Everton til að sanna ágæti sitt en nú er ljóst að hann verður frá í margar vikur.